Sterkari leiðtogi á tímum breytinga á 4 vikum
Á námskeiðinu færðu skref fyrir skref leiðbeiningar um hvernig þú getur styrkt þig sem leiðtogi og afkastað miklu þrátt fyrir verkefnafjölda og stanslausar breytingar á vinnustöðum nútímans
Þú munt læra um mismunandi stjórnunarstíla og máta þig við þá.
Þú munt læra að nota verkfæri til að kljást við pressu og verkefnafjölda dagsins í dag.
Þú munt læra aðferðir til að halda fókusnum og tryggja úthald í að klára löng verkefni.
Þú munt læra um hvernig breytingar hafa áhrif á fólk, fyrirtæki og stofnanir og hvernig hægt er að horfa á breytingar og óvissu sem tækifæri
Þú munt læra hvað er hægt að gera til að hvetja til meiri nýsköpunar innan fyrirtækja og stofnanna
Þetta námskeið er fyrir kvenstjórnendur hjá fyrirtækjum og stofnunum sem langar að afhenda ábyrgð betur til teymisins síns og langar til að hafa meiri tíma til að hugsa, en ekki bara slökkva elda.
Þetta er netnámskeið er hægt að taka þátt í því hvar sem er og þú getur skoðað allt efnið á þeim tíma sem hentar þér.
Ragnheiður H. Magnúsdóttir kennir námskeiðið. Hún er með yfirgripsmikla þekkingu úr íslensku viðskiptalífi, hefur verið gestakennari í HÍ, HR og Bifröst, og haldið fjölmarga fyrirlestra um nýsköpun og tækni á undanförnum árum.