Leiðtogaspeglun
námskeið fyrir stjórnendur
Ert þú tilbúin/n að taka næsta skref í þinni vegferð?
Að vera stjórnandi getur verið einmanalegt hlutverk
Í þessu námskeiði vinnum við með það sem skiptir raunverulega máli í daglegri stjórnun og leiðtogahlutverki:
hvernig þú verður skýrari í samskiptum
hvernig þú tekur erfið samtöl fyrr
hvernig þú setur mörk án þess að líða illa með það
hvernig þú hættir taka of mikið að þér sjálfri/sjálfum
hvernig þú leiðir með meiri ró og minni ringulreið
Þetta er ekki langt eða flókið námskeið.
Heldur hnitmiðað og praktískt námskeið sem er byggt á reynslu úr raunverulegum aðstæðum úr stjórnun, breytingastjórnun, nýsköpun og leiðtogastarfi.
Markmiðið er einfalt:
Að hjálpa þér að verða skýrari leiðtogi — fyrir sjálfa/n þig og fólkið í kringum þig.
Hvernig virkar leiðtogaspeglun?
-
Við vinnum með
teymisstjórnun
samskipti
erfið samtöl
forgangsröðun
ákvarðanir
daglegt leiðtogahlutverk
-
Eftir vinnuna okkar
tekur þú ákvarðanir með meira öryggi
upplifir þú minni óvissu
leiðir teymið af meiri festu
hefur skýrari sýn á næstu skref
Hver er Ragnheiður?
Ragnheiður H. Magnúsdóttir er leiðtogi með reynslu í stjórnun, nýsköpun og uppbyggingu teyma. Hún hefur stafað sem stjórnandi hjá Símanum, Hugsmiðjunni, Marel og Veitum en stafar nú sem ráðgjafi hjá Möggum, situr í nokkrum stjórnum fyrirtækja, ásamt því að vera fjárfestingastjóri og einn af stofnendum fjárfestingafélagsins Nordic Ignite.
Ragnheiður hefur haldið fjölmarga fyrirlestra hér heima og á hinum Norðurlöndunum yfirleitt tengt nýsköpun og tækni. Hún leggur áherslu á einfaldleika, skýrleika og hagnýtar aðferðir þegar kemur að stjórnun teyma.
Hvað kostar þetta?
Þetta er netnámskeið, 6 skipti, 1 klukkustund í senn.
Verð 197.000 kr. (með vsk)
Þetta er fyrir þig ef þú
ert í leiðtogahlutverki
vilt þróast áfram
vilt meiri skýrleika og festu
vilt fá stuðning
Jafnvel bestu leiðtogar þurfa einhvern til að spegla sig í.