Fyrirlestrar og vinnustofur

Fólk fer heim með nýja sýn og löngun til að láta hlutina gerast

Ég held fyrirlestra og stýri vinnustofum sem vekja fólk til umhugsunar, ögra viðteknum hugmyndum og kveikja áhuga á að gera hlutina öðruvísi.

Ragga heldur fyrirlestur við púlt

Fyrirlestrar í boði

Allir fyrirlestrarnir hafa verið fluttir áður og henta vel fyrir starfsdaga, ráðstefnur og stjórnendahópa. Hægt er að aðlaga efnið að hverjum hópi og þeim áskorunum sem hann stendur frammi fyrir.

Nýsköpun

Hættu að bíða eftir fullkomnu hugmyndinni

Góðar hugmyndir verða ekki til við að bíða eftir innblæstri. Þær verða til þegar við þorum að prófa, gera mistök og læra af þeim. Líflegur fyrirlestur um hvernig við sjáum tækifærin í kringum okkur og komum hugmyndum í framkvæmd.

Flutt m.a. fyrir: Hönnunarþing á Húsavík

Nýsköpun

Nýsköpun í auga stormsins

Þegar allt er á fleygiferð er freistandi að halda fast í það sem við þekkjum. En breytingar skapa líka tækifæri. Hvernig geta fyrirtæki og stofnanir nýtt óvissu, hugmyndir starfsfólks og breyttar þarfir viðskiptavina til að gera hlutina betur?

Flutt m.a. fyrir: Íslandsbanka, MiniMBA, stjórnendanám HÍ og Trackwell

Tæknibreytingar

Gervigreind, tæknibyltingar og við hin

Tæknin breytist hratt. En erum við jafn dugleg að breyta því hvernig við vinnum? Fyrirlestur um stafræna umbreytingu, gervigreind og hvers vegna stærstu áskoranirnar snúast yfirleitt ekki um tæknina sjálfa heldur fólkið, vinnubrögðin og menninguna.

Flutt m.a. fyrir: MBA-nám Háskóla Íslands

Fjármögnun

Hvar finn ég fjárfestana?

Hvað eru fjárfestar í raun að leita að? Hvernig vekur þú áhuga þeirra og hvað þarf að vera komið á hreint áður en þú biður um fjármagn? Hagnýt innsýn í fjármögnun sprotafyrirtækja frá einhverjum sem situr hinum megin við borðið og metur fjárfestingartækifæri reglulega.

Flutt m.a. fyrir: FKA og Norðanstorm í Hofi

Stjórnun

Valdefldu teymið þitt

Dagurinn fyllist af verkefnum, fundum og óvæntum uppákomum. En hvað verður þá um það sem raunverulega skiptir máli? Fyrirlestur um forgangsröðun, ábyrgð, valdeflingu og hvernig stjórnendur geta hætt að vera flöskuhálsinn í eigin teymi.

Einnig í boði: sem námskeið á netinu

Vinnustofa

Leiðtoginn, teymið og traustið

Hvað þarf til að byggja upp teymi sem tekur ábyrgð, treystir hvert öðru og þorir að gera hlutina öðruvísi? Hagnýt vinnustofa þar sem við skoðum ólíka stjórnunarstíla, samskipti, traust og hvernig leiðtogar geta skapað umhverfi þar sem bæði fólk og nýjar hugmyndir fá að blómstra.

Haldin m.a. fyrir: Land og skóg

Fyrirlestrarnir eru í boði á íslensku og ensku. Ertu með annað efni í huga? Sendu mér línu og við finnum út úr því saman.

„Fyrirlesturinn opnaði huga okkar og hentaði vel í að koma okkur í gírinn fyrir vinnuna seinna um daginn.“

Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Trackwell

Ertu að skipuleggja starfsdag eða ráðstefnu?

Sendu mér línu með dagsetningu, stærð hópsins og því sem þið viljið fá út úr deginum. Verð fer eftir umfangi.

raggam@maggar.is