Ráðgjöf

Sjáum tækifærin og komum breytingum í framkvæmd

Ég hjálpa stjórnendum að sjá tækifærin, taka erfiðu ákvarðanirnar og koma breytingum í framkvæmd. Markmiðið er alltaf það sama: að skapa raunverulegan árangur.

Hvar get ég hjálpað?

Stefnumótun

Ég aðstoða stjórnendur við að móta skýra stefnu með fólkinu sem á að vinna eftir henni. Þannig verður stefnan leiðarljós í daglegum ákvörðunum.

Nýsköpun

Nýsköpun á ekki bara heima í sprotafyrirtækjum. Ég hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að hlusta á viðskiptavini og starfsfólk, finna sóunina og prófa nýjar leiðir.

Tæknibreytingar

Hvort sem það er nýtt tækniumhverfi, sjálfvirknivæðing eða gervigreind hjálpa ég ykkur að velja réttu skrefin og fá fólkið með. Tæknin sjálf er sjaldnast stærsta áskorunin.

Uppbygging fyrirtækja

Ég hef stýrt hugbúnaðarfyrirtækjum, fjárfest í sprotafyrirtækjum og setið í stjórnum þeirra. Ég aðstoða stofnendur og stjórnendur við að skerpa á áherslum, forgangsraða og byggja upp sterk teymi.

Svona vinnum við saman

  1. Fyrsta spjallÞrjátíu mínútur, þér að kostnaðarlausu. Við förum yfir verkefnið og hvort ég er rétta manneskjan í það.
  2. Skiljum stöðunaVið byrjum á að greina stöðuna og skilgreina markmiðin, hvort sem leysa þarf ákveðinn vanda eða ráðast í stefnumótandi breytingar.
  3. Fólkið er hluti af lausninniVið vinnum með starfsfólkinu að því að finna lausnir sem virka. Þannig skapast bæði betri lausnir og meiri vilji til að koma þeim í framkvæmd.
  4. Í framkvæmdGóð áætlun skiptir litlu ef hún endar ofan í skúffu. Ég aðstoða stjórnendur við framkvæmdaáætlun og að fylgja breytingunum eftir.
„Ragnheiður hefur hjálpað okkur að umbylta einu stærsta upplýsingatækniumhverfi landsins hjá Reykjavíkurborg. Hún vann með okkur stefnu fyrir upplýsingatækniumhverfi borgarinnar og í kjölfarið innleiddi hún með okkur breytingar í samstarfi við starfsfólk í nokkrum deildum.“

Friðþjófur Bergmann, fyrrverandi skrifstofustjóri UTR Reykjavíkurborgar

Meðal viðskiptavina

Reykjavíkurborg Nordic Ignite Land og skógur Fagkaup Trackwell JT verk Gefn Menmice Hoobla

Ekkert verkefni er eins

Bókaðu fyrsta spjallið eða sendu mér línu á raggam@maggar.is, og við finnum saman lausn sem hentar.

Bókaðu fyrsta spjall