Um mig
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Ég hef verið framkvæmdastjóri, stjórnandi, fjárfestir og ráðgjafi. Ég hef unnið með fjölbreyttum fyrirtækjum og fólki, hér heima og á hinum Norðurlöndunum. Rauði þráðurinn er alltaf sá sami: nýsköpun, breytingar og uppbygging fyrirtækja.
Í grunninn er ég vélaverkfræðingur og hef alltaf haft gaman af því að leysa flókin verkefni. Ég er forvitin að eðlisfari, sé tækifæri víða og elska að tengja saman fólk. Ég er hreinskilin, spyr mikið og skoða hlutina frá fleiri en einu sjónarhorni.
Það skemmtilegasta sem ég geri er að hjálpa fólki og fyrirtækjum að sjá hlutina skýrar, taka góðar ákvarðanir og ná árangri.
Ég hef nefnilega aldrei verið hrifin af góðum hugmyndum sem enda ofan í skúffu. Ég vil sjá þær verða að veruleika.
Ferill
Í dag
Áður
Menntun
Stjórnir og trúnaðarstörf
Heiðursverðlaun fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi. Forseti Íslands afhenti verðlaunin í Hörpu.
Valin í hóp þeirra sem hafa mest áhrif í norræna tæknigeiranum.
Eigum við að spjalla?
Fyrsta spjallið er þér að kostnaðarlausu. Veldu tíma sem hentar og við finnum saman næstu skref.
Bókaðu stutt spjall