Námskeið

Hvernig kemst ég í stjórn?

Hagnýtt námskeið fyrir þá sem langar að komast í stjórnir fyrirtækja. Við förum yfir leiðirnar sem sjaldan er talað um: tengslanetið, persónulega vörumerkið og hvernig þú talar á netinu.

Miðvikudagur 25. nóvemberkl. 16:00 til 18:00
Hlíðasmári 2, 5. hæð201 Kópavogur
Aðeins 10 sætiLítill hópur og nóg rými fyrir spurningar
49.900 kr. með VSK

Fyrir hverja er námskeiðið?

Fyrir þig sem hefur áhuga á stjórnarsetu en veist ekki alveg hvernig þú átt að koma þér þangað.

Kannski hefurðu áralanga reynslu úr atvinnulífinu, sérþekkingu á ákveðnu sviði eða sterka stjórnunarreynslu. Þú veist að þú hefur eitthvað fram að færa, en tækifærin hafa ekki enn bankað upp á.

Þá er þetta námskeið fyrir þig.

Þú þarft ekki að hafa setið í stjórn áður. Það er einmitt tilgangurinn að hjálpa þér að taka fyrsta skrefið.

Það sem við förum yfir

  1. TengslanetiðHvernig byggir þú upp og nýtir tengslanetið þitt þannig að fólk viti af þér þegar tækifæri til stjórnarsetu gefast?
  2. Persónulega vörumerkiðHvernig kemurðu reynslu þinni, styrkleikum og sérþekkingu á framfæri þannig að þú sért áhugaverður kostur í stjórn?
  3. Sýnileiki á netinuHvernig geturðu nýtt LinkedIn og aðra miðla til að styrkja stöðu þína og koma þér á radarinn hjá þeim sem leita að stjórnarfólki?

Þú ferð heim með...

  • Skýrari mynd af því hvað þú hefur fram að færa sem stjórnarmaður.
  • Hugmyndir um hvernig þú getur nýtt tengslanetið þitt betur.
  • Ráð til að gera þig sýnilegri fyrir þá sem velja fólk í stjórnir.
  • Áþreifanleg næstu skref sem þú getur byrjað á strax.

Og vonandi aðeins meira sjálfstraust til að láta vita að þú hafir áhuga á stjórnarsetu!

Ragga Magnúsdóttir

Leiðbeinandi

Ragga Magnúsdóttir

Ég sit í stjórnum nokkurra sprotafyrirtækja og stærri fyrirtækja á borð við Kolibri, Faxaflóahafnir og Almannaróm. Á námskeiðinu deili ég því sem ég hef lært á leiðinni, bæði því sem virkaði og því sem ég myndi gera öðruvísi í dag.

Gott að vita

Fæ ég námskeiðið endurgreitt?

Mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms og námskeiða. Þú færð reikning með öllum upplýsingum sem þarf til að sækja um. Kannaðu reglurnar hjá þínu stéttarfélagi.

Hvað ef námskeiðið fyllist?

Sætin eru tíu og fyrstir koma, fyrstir fá. Sendu mér línu á raggam@maggar.is ef þú vilt fara á biðlista eða heyra af næsta námskeiði.

Hvernig skrái ég mig?

Þú fyllir út stutt skráningarform og færð kröfu í heimabanka. Sætið er staðfest þegar krafan hefur verið greidd.

Taktu fyrsta skrefið í átt að stjórnarsetu

Miðvikudagur 25. nóvember kl. 16:00 til 18:00 í Hlíðasmára 2.
Aðeins 10 sæti.

Tryggðu þér sæti