Leiðtogaspeglun

Það getur verið einmanalegt að vera stjórnandi

Og ekki alltaf augljóst hvert næsta skref á að vera. Í leiðtogaspeglun færðu tækifæri til að ræða áskoranir, skoða ný sjónarhorn og fá hreinskilna endurgjöf.

Sex fundirEin klukkustund hver
Á netinuÞar sem þér hentar
Þitt umræðuefniVið vinnum með það sem brennur á þér hverju sinni.
Verð197.000 kr. með VSK, allir fundirnir

Hvað gerist í speglun?

Ég hlusta, spyr krefjandi spurninga og hjálpa þér að sjá skýrar hvaða leiðir eru færar.

Markmiðið er að efla þig sem leiðtoga, auka sjálfstraust þitt og styrkja þig í að taka betri ákvarðanir.

Svona byrjum við

  1. Fyrsta spjallÞrjátíu mínútur, þér að kostnaðarlausu. Við förum yfir hvað brennur á þér og hvort speglun hentar.
  2. Sex fundir á netinuKlukkustund í senn, á tímum sem henta þér.
  3. Þú stýrir umræðunniStórar breytingar, krefjandi teymi, nýtt hlutverk eða næsta skref á ferlinum. Við vinnum með það sem skiptir þig máli hverju sinni.

Fyrir stjórnendur sem vilja vaxa í hlutverkinu

Hvort sem þú ert nýr í stjórnunarhlutverki eða með áralanga reynslu, þá færðu skýrari sýn, meiri festu og stuðning til að takast á við verkefnin.

Algeng umræðuefni

  • Skýrari samskipti
  • Erfið samtöl, áður en þau verða enn erfiðari
  • Að setja mörk og taka ekki of mikið á sig
  • Forgangsröðun og ákvarðanir
  • Að leiða teymið af yfirvegun og fókus

Það sem þú tekur með þér

  • Öruggari ákvarðanir
  • Minni óvissu
  • Meiri festu í stjórnun teymisins
  • Skýrari sýn á næstu skref
„Það var frábært að hugsa upphátt með henni og fá speglun, því hún er mjög fróð um stjórnun og uppbyggingu fyrirtækja.“

Harpa Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Hoobla

Ragga Magnúsdóttir

Hver speglar þig?

Ragga Magnúsdóttir

Ég hef verið stjórnandi hjá Símanum, Marel og Veitum og framkvæmdastjóri tveggja hugbúnaðarfyrirtækja. Í dag er ég fjárfestir og sit í stjórnum. Ég þekki áskoranir stjórnandans af eigin raun.

Meira um mig

Byrjum á spjalli

Fyrsta spjallið er þér að kostnaðarlausu og án allra skuldbindinga. Fá pláss eru í boði hverju sinni.

Bókaðu fyrsta spjall