Nýsköpun gerist ekki af sjálfu sér.
Ég heiti Ragga og ég hjálpa stjórnendum fyrirtækja og stofnana að hugsa stærra, taka skrefið og koma hugmyndum í framkvæmd.
Ég hef byggt upp fyrirtæki, leitt teymi og fjárfest í sprotafyrirtækjum. Sú reynsla er grunnurinn að minni ráðgjöf.
Ég er í grunninn vélaverkfræðingur og hef alltaf haft gaman af því að finna lausnir á alls konar vandamálum.
Ég hef verið stjórnandi hjá Símanum, Marel og Veitum og framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækjanna Mentis og Hugsmiðjunnar. Ég er einn af stofnendum Nordic Ignite, sjóðs sem fjárfestir í sprotafyrirtækjum á frumstigi á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.
Ég sit í stjórnum nokkurra sprotafyrirtækja og stærri fyrirtækja á borð við Kolibri, Faxaflóahafnir og Almannaróm.
HVER ER RAGGA?
SAMSTARF
Hvernig get ég hjálpað?
Leiðtogaspeglun
Það getur verið einmanalegt að vera stjórnandi og ekki alltaf augljóst hvert næsta skref á að vera. Í leiðtogaspeglun færðu tækifæri til að ræða áskoranir, skoða ný sjónarhorn og fá hreinskilna endurgjöf. Ég hlusta, spyr krefjandi spurninga og hjálpa þér að sjá skýrar hvaða leiðir eru færar. Markmiðið er að efla þig sem leiðtoga, auka sjálfstraust þitt og styrkja þig í að taka betri ákvarðanir.
Verð: 197.000 kr. með VSK
Námskeið
Hagnýt námskeið sem skila einhverju strax daginn eftir. Það nýjasta heitir „Hvernig kemst ég í stjórn?“ og fjallar um leiðirnar sem sjaldan er talað um: tengslanetið, persónulega vörumerkið og sýnileika á netinu.
Verð: birt við hvert námskeið
Ráðgjöf
Ég hjálpa stjórnendum að sjá tækifærin, taka erfiðu ákvarðanirnar og koma breytingum í framkvæmd. Hvort sem verkefnið snýst um stefnumótun, nýsköpun, tæknibreytingar eða uppbyggingu fyrirtækja er markmiðið alltaf það sama: að skapa raunverulegan árangur.
Verð: eftir umfangi verkefnis
Fyrirlestrar og vinnustofur
Ég held fyrirlestra og stýri vinnustofum sem vekja fólk til umhugsunar, ögra viðteknum hugmyndum og kveikja áhuga á að gera hlutina öðruvísi. Hvort sem viðfangsefnið er nýsköpun, tæknibreytingar eða stjórnun er markmiðið að þátttakendur fari heim með nýja sýn, ferskar hugmyndir og löngun til að láta hlutina gerast.
Verð: eftir umfangi
Það sem aðrir segja
„Ragnheiður hefur hjálpað okkur að umbylta einu stærsta upplýsingatækniumhverfi landsins hjá Reykjavíkurborg. Hún vann með okkur stefnu fyrir upplýsingatækniumhverfi borgarinnar og í kjölfarið innleiddi hún með okkur breytingar í samstarfi við starfsfólk í nokkrum deildum.“
Friðþjófur Bergmann
Fyrrverandi skrifstofustjóri UTR Reykjavíkurborgar
„Ragga hélt fyrirlestur um það hvernig mætti auka nýsköpun í fyrirtæki eins og Trackwell á starfsdegi með öllu starfsfólki okkar. Hún sagði okkur einnig frá þeim tækifærum sem eru til staðar tengt nýsköpun í íslensku samfélagi. Fyrirlesturinn opnaði huga okkar og hentaði vel í að koma okkur í gírinn fyrir vinnuna seinna um daginn.“
Jón Ingi Björnsson
Framkvæmdastjóri Trackwell
„Ragnheiður reyndist mér mjög vel þegar ég var að stofna og þróa Hoobla conceptið. Það var frábært að hugsa upphátt með henni og fá speglun, því hún er mjög fróð um stjórnun og uppbyggingu fyrirtækja. Stuðningur hennar auðveldaði mér skrefin við uppbyggingu á nýju og umbreytandi fyrirtæki.“
Harpa Magnúsdóttir
Framkvæmdastjóri Hoobla
Nýjustu pistlar
Hugleiðingar um nýsköpun, stjórnun og fjárfestingar. Margar þeirra byrjuðu sem færsla á LinkedIn.
STJÓRNUN
Hægt að hagræða en halda í fólkið
Við tölum gjarnan um starfsfólkið sem mikilvægustu auðlindina okkar. En þegar þrengir að erum við stundum ansi fljót að líta á það sem kostnaðarlið.
NÝSKÖPUN
Hugvitið er orðið stærri útflutningsstoð en sjávarútvegurinn
Ólíkt hinum stóru stoðunum byggir hann ekki á takmörkuðum náttúruauðlindum heldur hugviti, þekkingu og hugrekki fólks til að láta á hugmyndir sínar reyna.
GERVIGREIND
Hver ætlar að leiða gervigreindar-breytingarnar?
Við erum á fullu að prófa ChatGPT og Claude, halda námskeið, skrifa stefnur og stofna vinnuhópa. Allt gott og blessað. En hver ætlar eiginlega að leiða þessar stóru breytingar?
Þarftu að koma breytingum í gegn, grípa ný tækifæri eða taka erfiðar ákvarðanir?
Fyrsta spjallið er þér að kostnaðarlausu. Veldu tíma sem hentar og við finnum saman næstu skref. Þú getur líka sent mér línu á raggam@maggar.is.